Dave Allen
David Tynan O'Mahoney (6. júlí 1936 – 10. mars 2005) betur þekktur sem Dave Allen, var írskur skemmtikraftur. Hann gerði nokkrar sjónvarpsþáttaraðir fyrir Channel 9 í Ástralíu, og ITV og BBC í Bretlandi. Þættirnir voru blanda af uppistandi hans sjálfs og leiknum grínatriðum. Þessir þættir nutu gríðarlegra vinsælda og höfðu mikil áhrif á breska gamanþætti seinni tíma. Hann var þekktastur fyrir að sitja jakkafataklæddur í háum stól með sígarettu og viskýglas við hendina meðan hann sagði brandara. Hann var yfirlýstur trúleysingi og brandararnir snerust oft um kaþólsku kirkjuna og ensku biskupakirkjuna.