Claudio Villa (söngvari)
Claudio Villa (listamannsnafn Claudio Pica; 1. janúar 1926 – 7. febrúar 1987) var ítalskur söngvari frá Róm. Hann á, ásamt Domenico Modugno, metið í fjölda vinningslaga á Sanremo-tónlistarhátíðinni. Hann flutti ítalska lagið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árin 1962, þar sem hann lenti í níunda sæti, og 1967 þar sem hann hafnaði í því ellefta.