Camel
Camel eru alþjóðlegar sígarettur, framleiddar í Bandaríkjunum. Þær voru fyrst settar á markað árið 1913 í Bandaríkjunum af bandaríska sígarettufyrirtækinu RJ Reynolds Tobacco. Markmið fyrirtækisins var að búa til sígarettur sem létt væri að reykja, ólíkt öðrum tegundum á markaðnum. Aðrar sígarettur, eins og Lucky Strike, voru mjög sterkar fyrir fólk. Af þeim sökum urðu Camel sígaretturnar fljótt vinsælar. Tóbakið í Camel sígarettum er blanda af tyrknesku og bandarísku tóbaki.
Auglýsingar Camel sígaretta vöktu mikinn ágreining þar sem í þeim var notast við teiknimyndir af Joe Camel og markhópurinn var augljóslega ungt fólk. Ágreiningsmálið var að mörg ung börn gátu samsamað sig betur með Joe Camel en Mikka mús eða annarru teiknimyndapersónu.
Camel sígarettur eru enn þann dag í dag á markaðnum og hægt er að kaupa þær með eða án filters.