Búrkíní

(Endurbeint frá Burkini)

Búrkíní (blanda af orðunum bíkíní og búrka) er sundfatnaður ætlaður múslimakonum. Búningurinn var hannaður í Ástralíu árið 2011 og er hugmyndin að hylja líkama kvenna nema hendur, neðri part fóta og andlit.

Kona í búrkíní.

Búningurinn er umdeildur og árið 2016 bannaði borgarstjóri Cannes hann. 26 aðrar franskar borgir fylgdu ákvörðun borgarstjórans og hófu að sekta konur í búrkíní.

Mannréttindasamtök og samtök á móti islamofóbíu gagnrýndu bannið og sögðu það brot á frönskum lögum. Borgarstjórar sögðu að bannið væri sett til að gæta almannahagsmuna og fylgdi veraldlegum reglum. Manuel Valls forsætisráðherra studdi borgarstjórana. Kannanir sýndu að 64% Frakka voru fylgjandi banninu og 30% höfðu ekki skoðun. [1]

Tilvísanir

breyta
  1. France 'burkini ban': Court to decide on beach fines BBC. Skoðað 25. ágúst 2016.