Brjóstvísir
Brjóstvísir (eða uppskrift eða hávísir) er í prentlist tala, tákn eða texti sem er hægra eða vinstra megin við annað tákn og birtist ofar á línunni.
Notkun
breytaBrjóstvísar eru notaðir í stærðfræðiformúlum sem veldisvísar, í kjarneðlisfræði til að gefa til kynna massatölu frumeindakjarna og í prentlist til að gefa til kynna neðarmálsgrein.
Brjóstvísar í Unicode
breytaÍ Unicode eru fjölmörg tákn fyrir brjóstvísa, s.s. ⁰¹²³⁴⁵⁶⁷⁸⁹ fyrir veldisvísa ásamt öðrum táknum eins og ⁺⁻⁼⁽⁾ⁿ og ⁱ.
Tengt efni
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist brjóstvísum.