Borgarplast
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Borgarplast hf er iðnaðarframleiðslufyrirtæki sem var stofnað í Borgarnesi árið 1971 með uppsetningu frauðplastverksmiðju. Árið 1983 var hverfimótunardeild stofnuð við Hafnarbraut í Kópavogi sem síðan var flutt í Sefgarða á Seltjarnarnesi árið 1988. Síðla á árinu 2008 voru verksmiðjurnar í Borgarnesi og Seltjarnarnesi sameinaðar á sömu lóðinni að Völuteig 31 og 31A í Mosfellsbæ. Hjá fyrirtækinu vinna 30-40 manns, eftir verkefnastöðu hverju sinni.
Vörur úr Polyethylene og Polystyrene
breytaFramleiðslulína Borgarplasts samanstendur af vörum framleiddum úr polystyrene (EPS) og polyethylene (PE) að mestu til nota í matvæla- og byggingariðnaði.
Gæða- og umhverfisstefna
breytaBorgarplast er handhafi alþjóðlega gæðavottunarstaðalsins ÍST EN ISO 9001, síðan 1993. Einnig rekur fyrirtækið vottað umhverfisstjórnunarkerfi ÍST EN ISO 14001 og hefur gert síðan 1999. Árlega rennur 6-8% af veltunni til gæða-, umhverfis- og vöruþróunarmála.
Framleiðslugeta
breytaÁrleg framleiðslugeta hverfismótunardeildar fyrirtækisins samsvarar framleiðslu á 75 þúsund einangruðum kerum.
Viðskiptavinir
breytaMikil áhersla er lögð á útflutning á framleiðsluvörum fyrirtækisins en einnig á heimamarkað. Að jafnaði eru árlega fluttar út vörur til um 30 landa víðsvegar um heim, einkum einangruð ker og vörubretti.
Vörur til byggingariðnaðar eru seldar á heimamarkaði og til nágrannalandanna Færeyja og Grænlands.