Bikarlingsbálkur
Bikarlingsbálkur (latína: Helotiales) er ættbálkur sveppa sem flokkast undir Leotiomycetes innan asksveppa.[1] Samkvæmt mati frá 2008 inniheldur bikarlingsbálkur 10 ættir, 501 ættkvíslir og 3881 tegundir.
Bikarlingsbálkur | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Tvílitahnyðlingur tilheyrir bikarlingsbálki.
| ||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||
| ||||||||
Ættir | ||||||||
Einkenni
breyta- Bikarlingsbálkur einkennist af disklaga eða bollalaga askhirslum.
- Askar tegunda af bikarlingsbálki eru örlítið þykkir miðað við aðra sveppi af skiptingu Leotiomyctes.
- Flestir sveppir af bikarlingsbálki lifa sem rotverur í jarðvegi, á föllnum trjám, skít eða öðrum lífrænum leifum.
- Bikarlingsbálkur nær yfir flesta sveppi sem geta myndað lyngsvepprót með tegundum af lyngætt. Ættbálkurinn inniheldur til dæmis Rhizoscyphus ericae, Meliniomyces og Cairneyella variabilis.
- Ættbálkurinn inniheldur einnig marga alræmda sjúkdómsvaldandi sveppi.
Tilvísanir
breyta- ↑ Lumbsch TH, Huhndorf SM (desember 2007). „Outline of Ascomycota – 2007“. Myconet. Chicago, USA: The Field Museum, Department of Botany. 13: 1–58. Afrit af upprunalegu geymt þann 18. mars 2009.