Baltnesk tungumál
(Endurbeint frá Baltnesk mál)
Baltnesk tungumál eru grein indóevrópskra mála sem samanstendur af lettnesku og litáísku og hinni útdauðu fornprússnesku.
Baltnesk tungumál | ||
---|---|---|
Ætt | Indóevrópskt Baltóslavneskt Baltneskt | |
ISO 639-5 | bat |
Baltnesku málin, og í þessu tilfelli litáíska umfram lettnesku, eru talin fornlegustu og upprunalegustu lifandi indóevrópsku málin eða með öðrum orðum þau sem mest líkjast hinni indóevrópsku frumtungu.