Arameíska

tungumál
(Endurbeint frá Aramaíska)

Arameíska er semísk tunga sem á sér 3000 ára sögu. Arameíska er náskyld hebresku og var móðurmál Jesú frá Nasaret. Arameíska var rítuð með arameíska stafrófinu. Mælendatalan er nú í dag yfir 400 000. Ákveðni greinirinn er í arameísku, líkt og í íslensku, eftirskeyttur (-a). Arameíska hefur tvö málfræðileg kyn, kvenkyn og karlkyn, líkt og rómönsku málin. Lýsingarorð beygjast eftir kyni, tölu og falli. Nafnorð hafa þrjú föll þar með talið einskonar öfugt eignarfall sem ekki er sett á eigandann heldur eignina og skýrist þetta sumpart af orðaröð málsins.

  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.