Hlíðamaríustakkur
(Endurbeint frá Alchemilla minima)
Maríustakkur eða hlíðamaríustakkur (fræðiheiti Alchemilla filicaulis) er fjölær jurt af rósaætt (Rosaceae). Hún vex í Evrópu og austurhluta N-Ameríku, og á Íslandi er hún algeng um allt land.[2][3]
Maríustakkur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Alchemilla filicaulis Buser[1] | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Listi
|
Hann telst til svonefndrar vulgaris deildar, sem er hópur örtegunda sem erfitt getur verið að greina á milli vegna smásærra greiningaratriða.
Tvær undirtegundir teljast til maríustakks:[4]
- Alchemilla filicaulis Buser subsp. filicaulis, mmeð gisnari hæringu á blaðstilkum og litla sem enga á stönglum og blómleggjum
- Alchemilla filicaulis subsp. vestita (Buser) Bradsh. (Syn.: Alchemilla vestita Buser), með þétta hæringu
Heimildir
breyta- ↑ Buser (1893) , In: Bull. Herb. Boiss. 1, App. 2: 22
- ↑ „Hlíðamaríustakkur (Alchemilla filicaulis)“. Náttúrufræðistofnun Íslands. Sótt 26. apríl 2023.
- ↑ Alchemilla filicaulis (Lystigarður Akureyrar)
- ↑ „Flóra Íslands Flóran Blómplöntur“. www.floraislands.is. Sótt 27. apríl 2023.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Alchemilla filicaulis.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Alchemilla filicaulis.