Afríka (skattland)
(Endurbeint frá Africa (rómverskt skattland))
Afríka (latína: Africa) var rómverskt skattland í Norður-Afríku og náði yfir það sem í dag heitir Túnis, auk hluta af Miðjarðarhafsströnd Líbýu. Umdæmið var enn stærra á tímum veldis Karþagóar sem stóð í því miðju. Heimsálfan Afríka heitir í höfuðið á héraðinu. Arabar nefndu síðar nokkurn vegin sama svæði Ifriqiya.