Fjórir
Fjórir er fjórða náttúrlega talan og næst minnsta ferningstalan (einn er minnst) táknuð með tölustafnum 4 í tugakerfi. Fjórar eins einingar kallast ferna. Er óheillatala í Kína því framburðurinn líkist orðinu dauði.
Talan fjórir er táknuð með IV eða IIII í rómverska talnakerfinu.
Talan fjórir er aðeins hægt að beygja á nokkra máta:
Fleirtala
Karlkyn Kvenkyn Hvorugkyn
Nf. fjórir fjórar fjögur
Þf. fjóra fjórar fjögur
Þgf. fjórum fjórum fjórum
Ef. fjögurra ⁄ fjögra fjögurra ⁄ fjögra fjögurra ⁄ fjögra