Škoda Felicia
Škoda Felicia er fólksbíll frá Škoda Auto bílaframleiðandanum sem tók við af Škoda Favorit 1995. Felicia var því með fyrstu tegundum Škoda sem var með vél og fleiri íhluti frá Volkswagen, sem tók Škoda yfir árið 1991. Škoda Felicia er til í útgáfum með 1.3, 1.6 og 1.9 lítra vélum, sem fimm dyra hlaðbakur, skutbíll og sendibíll. Framleiðslu Felicia var hætt árið 2000, ári eftir að Škoda Fabia kom fyrst út.
Škoda Felicia | |
---|---|
Framleiðandi | Škoda Auto |
Framleiðsluár | 1994 - 2001 |
Forveri | Škoda Favorit, Škoda Forman |
Arftaki | Škoda Fabia |
Flokkur | Meðalstór fjölskyldubíll |
Yfirbygging | 5 dyra stallbakur, 4ra dyra hlaðbakur, 2ja dyra pallbíll, 2ja dyra sendibíll |
Vél | 1,3 lítra 4ra strokka, 1,6 lítra 4ra strokka, 1,9 lírtra dísel 4ra strokka |
Skipting | 5 gíra beinskiptur |
Tegundirnar hafa fengið mjög misjafna dóma enda misvel búnar eftir útgáfu og árgerð. Almennt hefur Škoda Felicia fengið góða dóma fyrir endingu, innrými og verð, en verri fyrir kraft (einkum 1.3 vélarnar).