Öxi (fjallvegur)
(Endurbeint frá Þjóðvegur 939)
Öxi er vegur á Austurlandi. Hann hefur þjóðveganúmerið 939 og liggur frá Berufirði yfir í Skriðdal. Vegurinn tengist hringveginum í báða enda. Endurbætur fóru fram á veginum frá 1998-2010 og eftir þær flokkaðist vegurinn sem heilsársvegur, en hann taldist fjallvegur fyrir endurbæturnar.