Þjóðvegur 38
Þjóðvegur 38 eða Þorlákshafnarvegur er 19 kílómetra langur vegur í Hveragerði og Ölfusi. Hann liggur frá Suðurlandsvegi frá hringtorginu við Hveragerði, út eftir vestanverðu Ölfusi að Þrengslavegi (39), beygir þar inn á hann og liggur meðfram hitaveiturörinu niður til Þorlákshafnar. Endar vegurinn við hringtorgið í útjaðri bæjarins.
Þessi samgöngugrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.