Þjóðskjalavörður
Þjóðskjalavörður er embættismaður og er forstöðumaður Þjóðskjalasafns Íslands. Embættið var stofnað með lögum um Þjóðskjalasafn Íslands árið 1915 og leysti af hólmi embætti landsskjalavarðar, en það embætti var stofnað árið 1899.
Þeir sem hafa gegnt embættinu:
- 1915-1924 Jón Þorkelsson forni, áður landsskjalavörður frá 1899
- 1924-1935 Hannes Þorsteinsson
- 1935-1957 Barði Guðmundsson
- 1957-1968 Stefán Pjetursson
- 1968-1984 Bjarni Vilhjálmsson
- 1984-2012 Ólafur Ásgeirsson
- 2012-2019 Eiríkur G. Guðmundsson
- 2019- Hrefna Róbertsdóttir[1]
TengillBreyta
- Erindisbréf fyrir þjóðskjalavörð Geymt 2016-03-05 í Wayback Machine.
TilvísanirBreyta
- ↑ „Hrefna Róbertsdóttir skipuð þjóðskjalavörður“. Þjóðskjalasafn Íslands | The National Archives of Iceland . 11. mars 2019. Sótt 21. júní 2019.