Þúfumerla
Þúfumerla (fræðiheiti: Caloplaca cerina) er tegund fléttna af glæðuætt (Teloschistaceae). Þúfumerla finnst á Íslandi.[1] Hún er algeng um allt land og finnst yfirleitt í miklum mæli þar sem kjörlendi hennar er að finna.[2]
Þúfumerla | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Caloplaca cerina |
Útlit og búsvæði
breytaÞúfumerla er hrúðurflétta sem vex á margvíslegu undirlagi, oft mosa eða plöntuleifum, gjarnan á fuglaþúfum[1][3] en einnig á dauðum viði og beinum.[1] Þalið hefur disklaga askhirslur sem eru yfirleitt karrýgular, dökkgular eða sjaldnar brúngular eða appelsínugular að ofan en með grásvörtum, stundum hrímlitum barmi.[1]
Átta gró eru í hverjum aski. Gróin eru glær, oddbaugótt eða sporbaugótt, tvíhólfa, 14-19 x 8-9,5 µm að stærð.[1]
Efnafræði
breytaEins og aðrar fléttur af glæðuætt inniheldur þúfumerla gula litarefnið parietín en þó aðeins í askhirslum sínum.[1]
Þalsvörun þúfumerlu er K- fyrir þalið en askhirslur eru K+ vínrauðar, C-, KC- og P-.[1]
Myndir
breyta-
Nærmynd af þúfumerlu. Gráleit þalrönd sést vel á jaðri askhirslnanna.
-
Muscorum-afbrigði þúfumerlu, Caloplaca cerina var. muscorum.
-
Þúfumerla á gamalli birkigrein.
-
Þversneið af þali þúfumerlu. Askar og gró sjást greinilega.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 1,4 1,5 1,6 Hörður Kristinsson (2016). Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. ISBN 978-9979-66-347-8
- ↑ Starri Heiðmarsson (2008). Gróðurfar á Ófeigsfjarðarheiði.[óvirkur tengill] Skýrlsa Náttúrufræðistofnunar Íslands nr. NÍ-08005, unnin fyrir Orkustofnun vegna Rammaátætlunar.
- ↑ Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8