Íslenska þjóðfylkingin
Íslenska þjóðfylkingin er íslenskur stjórnmálaflokkur, sem stofnaður var árið 2016. Hægri grænir, sem buðu fram til Alþingis árið 2013, sameinuðust flokknum í febrúar 2016.[1]
Íslenska þjóðfylkingin | |
---|---|
Formaður | Guðmundur Þorleifsson |
Stofnár | 2016 |
Höfuðstöðvar | Dalshraun 5, Hafnarfirði. |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Einstaklingsfrelsi • Beint lýðræði • Takmörkuð ríkisafskipti • Gegnsær ríkisrekstur • Náttúruvernd • Haftalaus milliríkjaviðskipti. |
Vefsíða | x-e.is |
Flokkurinn vill endurskoða aðild Íslands að EES og ganga úr Schengen samstarfinu. Áhersla er að vernda íslenska þjóðmenningu og fullveldi Íslands. Flokkurinn hafnar fjölmenningu og berst gegn því að moskur verði reistar. [2]
Helgi Helgason var kosinn formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar í lok júní, 2016. Samþykkt var ályktun þar sem nýjum útlendingalögum var mótmælt.[3]
Í apríl 2017 var Guðmundur Þorleifsson kosinn formaður. Árið 2017 var listabókstafur flokksins gerður upptækur en þrátt fyrir það er enn virkt starf innan flokksins.
Árið 2018 var Frelsisflokkurinn stofnaður sem klofningur af Íslensku þjóðfylkingunni.
Alþingiskosningar 2016
breytaÍslenska þjóðfylkingin ætlaði sér að bjóða fram í öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum árið 2016 [4] Deilur innan flokksins urðu til þess að flokkurinn hætti við að bjóða fram í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Gústaf Níelsson og Gunnlaugur Ingvarsson voru efstu menn á lista þar. Þeir eru sakaðir um að hafa stolið meðmælalistum flokksins í þeim kjördæmum og bíða ákæru formannsins. Ekki náðist að koma saman framboði í Norðaustutkjördæmi. Einnig var hætt við framboð í Suðvesturkjördæmi vegna skorts á meðmælendum. [5] Flokkurinn fékk 0,2% atkvæða í kosningunum.
Tenglar
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Hægri grænir ganga til liðs við Íslensku þjóðfylkinguna Vísir, skoðað 24. okt, 2016
- ↑ Unnið að stofnun flokks sem leggst gegn fjölmenningu og byggingu mosku á Íslandi
- ↑ Vilja afturkalla útlendingalög Rúv, skoðað 4. júlí, 2016
- ↑ Vel á annan tug flokk bjóða fram til Alþingis Rúv. Skoðað 17. ágúst, 2016.
- ↑ Bíða með að kæra stuld fram yfir kosningar Rúv, skoðað 24. okt, 2016.