Dardanellasund
(Endurbeint frá Çanakkale Boğazı)
Dardanellasund (gríska Δαρδανελλια; tyrkneska Çanakkale Boğazı) áður þekkt sem Hellespontus eða Hellusund er mjótt sund í norðvesturhluta Tyrklands sem tengir Marmarahaf við Eyjahaf. Það er aðeins 1,2 til 6 km breitt. Líkt og Bosporussund skilur það milli Evrópu og Asíu.