Upernavik, er bær á norðvesturströnd Grænlandi með um 1050 íbúa (2017). Bærinn er hluti af sveitarfélaginu Avannaata. Fyrir utan aðalbæinn eru 10 minni byggðarlög í nágrenninu.

Fyrsti skóladagurinn 2007

Norðurhluti svæðisins er einungis jöklar sem ganga í sjó fram en syðst eru nokkur gróðursæl svæði. Helsta atvinna er við fiskiveiði og fiskvinnslu en hefðbundin selveiði er einnig stunduð. Ísbirnir eru algengir, sérlega að vetrarlagi. Á svæðinu lýsir miðnætursól frá 12. maí fram til 1. ágúst og vetrarmyrkur ríkir frá 4. nóvember fram til 5. febrúar. Grænlenska nafnið Upernavik þýðir „vorstaðurinn“ enda söfnuðust inuítafjölskyldurnar þar saman þegar ísa leysti á vorin.

Rétt norðaustur af Upernavik-bæ, þar sem nú heitir Kingittorsuaq, fannst 1823 lítill rúnasteinn í vörðu með áletruninni: „Erlingr Sighvats sonr ok Bjarni Þórðar sonr ok Eindriði Odds sonr laugardagin fyrir gagndag hlóðu varða þe[ssa] ok ... ....“. Samkvæmt rúnasérfræðingum er áletrunin sennilega frá lokum 13. aldar og eru þetta nyrstu minjar sem Grænlendingar hinir fornu skildu eftir sig.

Þorpið Upernavík í miðnætursól

Ítarefni

breyta