Uncharted: The Lost Legacy
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
Uncharted: The Lost Legacy er hasarleikur fyrir PlayStation 4 og er hannaður af Naughty Dog. Leikurinn átti upphaflega að vera niðurhalanleg viðaukasaga fyrir Uncharted 4 en metnaður Naughty Dog jókst í framleiðslunni þannig að þeir gáfu söguna út sem sérleik á hálfverði. [1] Ólíkt öðrum Uncharted-leikjum þá spilar maður sem þjófurinn Chloe Frazer sem var í öðrum og þriðja leiknum. Leikurinn kom út 23. ágúst 2017.
Söguþráður
breytaSöguþráðurinn fylgir þjófinum og fjársjóðsleitandanum Chloe Frazer sem hefur ferðast til Indlands í leit að skögultönn Ganesar. Hún hefur ráðið Nadine Ross, fyrrverandi yfirkonu Shoreline, til þess að hjálpa sér að glíma við hrottafulla byltingarleiðtogann Asav sem er líka á eftir skögultönninni. Chloe og Nadine ferðast um frumskóga Indlands í fjársjóðsleitinni en þurfa að læra að treysta hvor annarri ef þeir ætla sér að sigra Asav.
Leikarar og hlutverk
breyta- Claudia Black sem Chloe Frazer
- Laura Bailey sem Nadine Ross
- Usman Ally sem Asav
- Gideon Emery sem Orca
- Troy Baker sem Sam Drake