Turninn í Hanoi
Turninn í Hanoi (eða Turnarnir í Hanoi) er stærðfræðileikur eða þraut sem samanstendur af borði með þremur áföstum prikum og n hringjum (oftast 8) með mismunandi þvermál, í upphafi þrautarinnar eru allir hringirnar á einu priki raðaðir eftir stærð með þann stærsta neðst. Markmið þrautarinnar er svo að koma þeim öllum á annað hvort hinna prikanna en aðeins má þó færa einn hring í einu, og ekki má setja hring ofan á minni hring.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Turninum í Hanoi.