Skógarsmári
(Endurbeint frá Trifolium medium)
Skógarsmári, eða Trifolium medium,[1] er blómstrandi plöntu tegund í ertublómaætt Fabaceae. Hann er mjög líkur rauðsmára, Trifolium pratense, en smáblöðin eru mjórri og án hvítra merkinga.[2] Tegundin vex villt í Evrópu, frá Bretlandi til Kákasus.[3]
Skógarsmári | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Trifolium medium L. | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
|
Ræktun
breytaSkógarsmári hefur lítið verið í ræktun þar sem hann er mjög skriðull, sem hentar ekki í venjulegum görðum. Stilkurinn er einnig sveigður og stendur ekki vel undir sér svo honum hættir til að leggjast undan eigin þunga. Skógarsmári hefur lítið eitt verið notaður til jarðvegsbætingar þar sem hann er niturbindandi eins og aðrar tegundir af ertublómaætt.
Tilvísun
breyta- ↑ "Trifolium medium". Natural Resources Conservation Service PLANTS Database. USDA. Retrieved 15 December 2015.
- ↑ Blamey, M.; Fitter, R.; Fitter, A (2003). Wild flowers of Britain and Ireland: The Complete Guide to the British and Irish Flora. London: A & C Black. ISBN 978-1408179505.
- ↑ „Trifolium medium“.
Tenglar
breyta- Trifolium medium; af Lystigarður.akureyri.is Geymt 14 ágúst 2020 í Wayback Machine
- Den virtuella floran
- Nordiske floran, Runebjerg projekt
Wikilífverur eru með efni sem tengist Trifolium medium.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Trifolium medium.