Torfþak
Torfþak (eða þekja) er þak á torfhúsum, þannig gert að notað er torf sem þakefni ofan á áreftið. Nærþak nefndist innri byrði þaksins, og utan þess kom þunnt moldarlag, en yst snyddu- eða torfþak úr valllendistorfi og sneri grasrótin út. Á tvíása torfþökum var þakið þykkast yfir miðjum vöglum, og var það gert til þess að fá vatnshalla.
Torfþök voru algengustu þök húsa á Íslandi í næstum því þúsund ár.
Orð tengd torfþaki
breyta- innstafur stoð inni í húsi til að halda uppi þekju.
- raftur viðarrengla í torfþaki, milli mæniáss og vegglægju (til að halda uppi torfi).
- refta leggja, láta rafta á, leggja spýtur, viðargreinar í þak til að halda uppi torfi.
- torfvölur ávali á torfþaki til að vatn rynni betur af því.
- vagl þvertré ofan á innstöfum og milli þeirra, þvert undir mæninum.
- vegglægja veggjarpallur, röndin á veggnum að ofan, innan við sperruhælana.