Sveigakot
Sveigakot er fornleifagröftur um 6 kílómetra suður af Mývatni í landi Grænavatns, í Þingeyjarsveit. Þar hófust fornleifarannsóknir 1998 og ári síðar fornleifauppgröftur.
Umhverfi
breytaNafnið Sveigakot kemur fyrir í örnefnalýsingu Grænavatns og vísar til rústa þar sem talið er að bær hefði verið áður. Staðurinn er á rýru landi rétt austan við Kraká, en graslendi er nokkuð í kring og myndar sveiga í landslaginu. Talið að staðurinn dragi nafn sitt af þessum sveigum og þar sem gróður á þessu svæði hefur minnkað mjög frá landnámi er nafnið Sveigakot ekki endilega nafnið á þeim bæ sem þarna stóð, enda er nafnið ekki þekkt úr neinum eldri heimildum. Grænavatns er hinsvegar getið í Landnámabók sem eins af fyrstu býlum á þessu svæði við landnám og þar bjó landnámsmaðurinn Þorkell hávi[1].
Rannsóknir og uppgröftur
breytaAthuganir hófust á svæðinu árið 1998, þá var safnað saman dýrabeinum sem sýnileg voru á yfirborðinu og komið höfðu í ljós vegna jarðvegseyðingar. Árið eftir var grafið á þeim stað sem beinin fundust og þar reyndist öskuhaugur undir. Sama ár var einnig grafið þar sem virtust vera rústir bæjarhúsa. Við þessar rannsóknir kom í ljós að minjarnar væru frá víkingaöld[2]. Verkefninu lauk árið 2006 þegar allar minjar á svæðinu höfðu verið kannaðar[3]. Alls voru um 700 m2 grafnir upp í Sveigakoti[4].
Ályktanir
breytaÞað sem gerir Sveigakot að sérstökum fornleifauppgreftri er að þar er öskulag sem líklega hefur fallið um 950. Þetta gerir að verkum að hægt er að tímasetja fyrstu byggingarnar í Sveigakoti með meiri vissu en annarsstaðar til fyrstu áratuga landáms hér á landi. Elstu útihúsin voru fjós 11x4 metrar að stærð en mannabústaður frá þessum tíma var einungis niðurgrafið hús 5x4 metrar að stærð[5]. Fjósið er talið það elsta sem fundist hefur á Íslandi[6]. Þeir gripir og mannvistarleifar sem fundist hafa í Sveigakoti gefa til kynna venjulegt heimilishald þess tíma. En þó er óvenjulegt hversu lengi heimilisfólk virðist hafa búið í jarðhúsum, það er smáum niðurgröfnum húsum. Það er ekki fyrr en á síðari hluta tíundu aldar sem byggður var skáli eins og algengastur var á tíma fyrstu byggðar á Íslandi. Seinni íverustaðir eru meðal annnars skáli sem hefur verið í notkun eitthvað fram á 12. öld, en þá virðist búskapur leggjast af í Sveigakoti og fólkið flytjast á brott[7].
Tilvísanir
breyta- ↑ Archaelogical investigations at Sveigakot 1998-2000, ritstj. Orri Vésteinsson, Fornleifastofnun Íslands (Reykjavík 2001), bls. 4-8.
- ↑ Archaelogical investigations at Sveigakot 1998-2000, ritstj. Orri Vésteinsson, Fornleifastofnun Íslands (Reykjavík 2001), bls. 7-9.
- ↑ Archaelogical investigations at Sveigakot 2006, ritstj. Guðrún Alda Gísladóttir & Orri Vésteinsson, Fornleifastofnun Íslands (Reykjavík 2008), bls. 4.
- ↑ Archaelogical investigations at Sveigakot 2005, ritstj. Orri Vésteinsson, Fornleifastofnun Íslands (Reykjavík 2006), bls. 4.
- ↑ Ársskýrsla 2006, ritsj. Birna Lárusdóttir, Fornleifastofnun Íslands, Reykjavík, bls 33-37.
- ↑ Birna Lárusdóttir, Mannvist. Sýnisbók íslenskra fornleifa, Bókaútgáfan Opna (Reykjavík 2011), bls. 104.
- ↑ Archaelogical investigations at Sveigakot 2004, ritstj. Orri Vésteinsson, Fornleifastofnun Íslands (Reykjavík 2005), bls. 52.