Snowdon
Snowdon (velska: Yr Wyddfa) er hæsta fjall Wales og hæsta fjall Bretlandseyja sunnan Skotlands; 1.085 metrar. Það er staðsett í Snowdonia í norðurhluta Wales og þýðir nafnið snjóhæð á fornri ensku.
Snowdon Yr Wyddfa | |
Tindar Snowdon | |
Hæð | 1.085 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning | Snowdonia |
Fjallgöngur og klettaklifur eru vinsæl afþreying á fjallinu. Edmund Hillary æfði sig á fjallinu fyrir Everest ferð sína. Lest liggur upp á fjallið og var hún starfrækt fyrst árið 1896. Þjónustumiðstöð og kaffihús er á toppnum.
-
Í Clogwyn Du'r Arddu er vinsælt að klífa kletta.
-
Lestin upp á fjallið.
-
Lestarstöðin undir fjallinu.
-
Þjónustumiðstöðin.
-
Útsýni af toppnum.