Skapabarmarnir eru hluti af kynfærum kvenmanna. Þeir eru sá hluti píkunnar sem sést hvað best.
Vinstri: Óörvuð píka. Hægri: Þegar píkan er kynferðislega örvuð þrútna skapabarmarnir og ytri skapabarmarnir færast aðeins frá. Píkan blotnar líka til að smyrja sig.
Í manninum eru tvö pör af skapabörmum:
Ytri skapabarmarnir eru stærri. Þeir eru fósturfræðilega skyldir pung karlmanna.
Innri skapabarmar eru húðfelling sem kemur milli ytri skapabarmanna.