Söngur iðnaðarmanna
Söngur iðnaðarmanna er ljóð sem þjóðskáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi samdi árið 1942 í tilefni 75 ára afmælis Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík sem stofnað var 3. febrúar 1867 þá undr nafninu Handiðnaðarfélagið. Kvæðið birtist í Tímariti iðnaðarmanna sem Landsamband iðnaðarmanna í Reykjavík, 1. febrúar 1942. Karl Ottó Runólfsson tónskáld í Reykjavík samdi lag við kvæðið.
Kvæðið „Söngur iðnaðarmanna“
breyta- Látum iðjunnar óð
- vekja íslenzka þjóð.
- Það sé líf vort og lag.
- Svo hún skilji að merk
- og skapandi verk
- boða skínandi dag.
- Meðan höndin er hög
- við sinn hefil og sög
- ráða listanna lög.
- Brýnum bitlausa egg.
- Hlöðum bjargfastan vegg.
- Reisum rjáfur og þök.
- Látum vélar og stál
- þroska vinnandi sál,
- efla vöðvanna tök.
- Látum hamarsins högg
- sýna hugsun og rögg,
- vera glaðleg og glögg.
- Heitum borgum og byggð
- vorri blessun og tryggð.
- Verum þjóðinni þörf.
- Hver sem átökum ann,
- hver sem erfiði vann
- léttir annara störf.
- En á svip vorum sést
- hver vann sannast og bezt.
- Þar er mannrænan mest.
- Ef hin stórhuga stétt
- markar stefnuna rétt,
- verður samhend og sönn,
- mun vor fjölmenna sveit
- mæta fagnandi heit
- hverri framtíðar önn.
- Látum iðjunnar óð
- skapa íslenzka þjóð.
- Það sé líf vort og Ijóð.
- (Höf. Davíð Stefánsson þjóðskáld).
Lag Karls O. Runólfssonar
breytaTónskáldið Karl Ottó Runólfsson (f. 1900) í Reykjavík samdi lag við kvæðið og eru nótur hans birtar í Tímariti iðnaðarmanna 1. febrúar 1942.
Heimildir
breyta- „Söngur iðnaðarmanna“, Tímarit iðnaðarmanna 15. árg. 1. tbl., 1. febrúar 1942, bls. 2.