Pommern (hérað)
Pommern (pólska: województwo pomorskie) er hérað í Norður-Póllandi. Það var stofnað þann 1. janúar 1999 við sameiningu nokkurra eldri héraða. Stærstu borgirnar í héraðinu eru Gdańsk, höfuðborg héraðsins, Gdynia, Słupsk og Sopot. Árið 2011 voru íbúar héraðsins 2.264.000 samtals. Flatarmál héraðsins er 18.310 ferkílómetrar.