Neyðarlínan ohf. er opinbert hlutafélag sem rekur neyðarnúmerið 112 á Íslandi. Neyðarlínan er staðsett í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í Reykjavík ásamt ýmsum viðbragðsaðilum eins og Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslunni, Fjarskiptamiðstöð Lögreglu, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar er Þórhallur Ólafsson og aðstoðarframkvæmdastjóri Tómas Gíslason, skrifstofustjóri er Árni Möller.

Fyrirtækið þjónustar flesta viðbragðsaðila landsins og leysir af yfir 400 neyðarnúmer sem voru hjá viðbraðsaðilum áður fyrr. Meðal verkefna Neyðarlínunnar eru sjúkraflutningaskráning, svörun fyrir lögreglu, neyðarnúmer barnaverndarstofu, umhald upplýsinga um viðbragðsaðila og einnig er neyðalínan aðili að almannavörnum með aðild að Samhæfingarstöð almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra.

Um 16-18 neyðarsímverðir svara í neyðarnúmerið 112 á reglulegum vöktum, allan sólarhringinn allan ársins hring, en um 26 manns vinna í heild hjá fyrirtækinu. Starfsfólk er vel þjálfað og sem dæmi má nefna að neyðarverðir fara reglulega á vaktir með slökkviliðs- og sjúkrabílum, lögreglubílum, björgunarsveitum, og vaktir staðnar á slysadeildinni svo fátt eitt sé nefnt. Regluleg þjálfun og endurmenntun er undirstaða þess að neyðarnúmerið 112 er þekktasta símanúmerið á Íslandi. Svörun er líka með því besta sem gerist í Evrópu, en svarað er á innan við 3,64 sek sem telst vera 3. besti svartími í Evrópu. Evrópusambandið setur það sem lög að svara verði innan 8 sek, svo fremi sem álag sé ekki þeim mun meira að ekki tekst að anna hringingum.

Frá árinu 2005 hefur verið haldið upp á 112 daginn (11.2) sem er samevrópskur dagur, að þessum degi koma Neyðarlínan, Lögreglan, Slökkvi- og sjúkralið, Landsbjörg, Landlæknisembættið, Landhelgisgæslan, Rauði kross Íslands, Flugstoðir, Vegagerðin, Ríkislögregludeild Almannavarna og Barnaverndarstofa. Á þessum degi er valinn skyndihjálparmaður ársins, það er sú persóna sem hefur sýnt snarræði með góðri kunnáttu í skyndihjálp og jafnvel bjargað mannslífi. Lögreglukórinn tekur lagið, menntamálaráðherra heldur ræðu, veitt eru verðlaun í eldvarnargetraun slökkviliðsins og árið 2009 var valinn í fyrsta sinn neyðarvörður ársins. Fyrstur til að hljóta þessa tilnefningu er Sigurður Viðar Ottesen og fer nafn hans á viðurkenningarskjöld.

Neyðarlínan sér einnig um rekstur á Tetra fjarskiptakerfinu, það er besta kerfið sem völ er á og er alls staðar notað af öllum leitar- og björgunaraðilum í heiminum í dag.

Vaktstöð siglinga VSS (gamla Tilkynningarskylda báta) er einnig staðsett í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð og er rekin samhliða með stjórnstöðinni hjá Landhelgisgæslunni.

Tenglar

breyta