Netaskip
Netaskip stunda netaveiðar en eru oftar en ekki líka á öðrum veiðarfærum á öðrum árstímum til að nýta sem best skipið yfir árið. Þau geta verið á línuveiðum, dragnótaveiðum og togveiðum. Þau geta verið frá 5 brt. (brúttótonn) til 320 brt. og eru aðallega smíðuð úr stáli, timbri og trefjaplasti. Stærri skipin eru aðalega á bolfiskveiðum sunnan við land á meðan smærri skipin eru frekar á grásleppuveiðum með bolfiskveiðunum.
Heimildir
breyta- Gamla upplýsingarveita Sjávarútvegsráðuneytisins (2007). Íslensk fiskiskip. Sótt þann 9. apríl 2009 af Old.Fisheries.is[óvirkur tengill].
- Upplýsingamiðstöð Sjávarútvegsráðuneytisins (2009). Fishing vessels. Sótt þann 9. apríl 2009 af Fisheries.is.