Varró
(Endurbeint frá Marcus Terentius Varro)
Marcus Terentius Varro, víðast þekktur undir nafninu Varró, (116 f.Kr. – 27 f.Kr.) var rómverskur fræðimaður og rithöfundur, sem Rómverjar kölluðu „lærðasta mann Rómaveldis“.
Rit
breytaVarró samdi meira en 400 ritverk um ævina en einungis tvö eru varðveitt. Brot eru varðveitt úr sjötíu verkum öðrum. Varðveitt eru verkin:
- De lingua latina libri XXV (eða Um latneska tungu í 25 bókum)
- Rerum rusticarum libri III (eða Sveitamál í þremur bókum)