Maríulykill
Maríulykill (fræðiheiti: Primula stricta) er sjaldgæf háplanta sem vex á norðurslóðum.
Maríulykill | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Primula stricta Hornem. | ||||||||||||||
Útbreiðsla Maríulykils
|
Lýsing
breytaGrannur stöngull 5 -20 sm hár. Blöðin Heilrend, fremur mjó, breiðust framan til, en mjókka niður að stilknum sem er örstuttur, stundum mjölvuð á neðra borði. Blómin smá, rauðfjólublá til ljósfjólublá. 2n =126[1]
Útbreiðsla og búsvæði
breytaMaríulykill vex í votum jarðvegi við árbakka í fjallendi á norðlægum slóðum og finnst í fjöllum Skandinavíu, norðaustur Finnlandi og Kólaskaga, Síberíu og Kanada ásamt Grænlandi. Afar sjaldgæfur á Íslandi og finnst aðeins á nokkrum stöðum í Eyjafirði.
Tilvísanir
breyta- ↑ Áskell Löve; Dagny Tande (myndir) (1970). Íslensk ferðaflóra. Almenna Bókafélagið. bls. 336.
Tenglar
breyta- Armeniapedia: Medicinal Uses of Primula
- American Primrose Society
- http://www.primulaworld.blogspot.is/
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist maríulykli.
Wikilífverur eru með efni sem tengist maríulykli.