Magnea Gná Jóhannsdóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir (fædd 3. apríl 1997) er íslensk stjórnmálakona og borgarfulltrúi fyrir Framsókn í Reykjavík. Magnea náði kjöri í borgarstjórn 14. maí 2022, þá 25 ára og 41 dags, yngst allra sem náð hafa kjöri í borgarstjórn.[1]

Lífshlaup

breyta

Magnea Gná Jóhannsdóttir fæddist í Reykjavík en ólst upp í Bolungarvík. Magnea er dóttir Jóhanns Hannibalssonar sem var lengi sveitarstjónarmaður og bóndi á Hanhóli í Bolungarvík en starfar nú sem snjóflóðaathugunarmaður og við kennslu og Guðrún Stellu Gissurardóttur sem er forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum.[2][3] Magnea Gná á þrjár systur.

Hún lauk alþjóðlegu stúdentsprófi (IB diploma) frá United World College Red Cross Nordic í Noregi árið 2017.[4] Það sama ár flutti Magnea til Taílands þar sem hún vann sem starfsnemi að þróun alþjóðlega skólans United Word College Thailand.[4] Árið 2021 lauk Magnea B.A. námi við lagadeild Háskóla Íslands og stundar nú meistaranám við sömu deild.[5] Frá árinu 2023 hefur Magnea setið í stjórn United World College Red Cross Nordic.[6]

Stjórnmálaferill

breyta

Magnea Gná Jóhannsdóttir var kjörin formaður Ung Framsókn í Reykjavík í apríl 2022. Magnea hefur setið í stjórn Ung Framsókn frá árinu 2019 og var varaformaður félagsins frá 2021-2022. Þá var hún kynningarstjóri Sambands ungra Framsóknarmanna á árunum 2019 til 2021.[7]

Magnea Gná Jóhannsdóttir hlaut kjör í borgarstjórn Reykjavíkur í maí 2022.

Tilvísanir

breyta
  1. Ólafsdóttir, Kristín (15. maí 2022). „Konurnar sem skráðu sig á spjöld sögunnar í nótt - Vísir“. visir.is. Sótt 3. janúar 2023.
  2. „ÁSTA HANNESDÓTTIR“. www.mbl.is. Sótt 3. janúar 2023.
  3. „Magnea Gná Jóhannsdóttir | Reykjavik“. reykjavik.is. Sótt 3. janúar 2023.
  4. 4,0 4,1 Cluett, Edmund. „Magnea Gná Jóhannsdóttir (RCN '15 - '17)“. UWC Red Cross Nordic (bandarísk enska). Sótt 3. janúar 2023.
  5. Árnason, Eiður Þór (20. apríl 2022). „Magnea Gná nýr for­maður Ung Fram­sókn í Reykja­vík - Vísir“. visir.is. Sótt 3. janúar 2023.
  6. Cluett, Edmund. „Governance“. UWC Red Cross Nordic (bandarísk enska). Sótt 25. janúar 2024.
  7. Árnason, Eiður Þór (20. apríl 2022). „Magnea Gná nýr for­maður Ung Fram­sókn í Reykja­vík - Vísir“. visir.is. Sótt 3. janúar 2023.