MARPOL 73/78
MARPOL 73/78, MARPOL-samningurinn eða Alþjóðasamningur um varnir gegn mengun frá skipum, 1973, með breytingum samkvæmt bókun 1978 frá 17.2.1978 er mikilvægur alþjóðlegur samningur um umhverfismál. Hann var saminn af Alþjóðasiglingamálastofnuninni. Tilgangur hans er að draga úr mengun í hafi, þar með talið sorpmengun, olíumengun og loftmengun.
Upphaflegi samningurinn var undirritaður 17. febrúar árið 1973. Núverandi samningur inniheldur einnig bókun frá 1978. Hann tók gildi 2. október 1983. Sex viðaukar eru við samninginn og þurfa aðildarríki að fullgilda þá sérstaklega. Árið 2022 höfðu 160 ríki undirritað samninginn með viðaukum I-II en síðan fækkar ríkjum sem undirritað hafa síðari viðauka. Ísland gerðist aðili að samningnum árið 1983 og fullgilti viðauka I og II 1985 og viðauka III og V árið 1989. Viðauki VI var fullgiltur 2018 og viðauki IV 2019.
Viðaukar
breytaViðauki | Efni | Gildistaka | Fjöldi aðildarríkja (2022) |
---|---|---|---|
Viðauki I | Varnir gegn mengun frá olíu og olíumenguðum vökvum | 2. október 1983 | 160 |
Viðauki II | Varnir gegn mengun frá hættulegum vökvum sem fluttir eru með skipum | 6. apríl 1987 | 160 |
Viðauki III | Varnir gegn mengun frá eiturefnum sem flutt eru með skipum | 1. júlí 1992 | 150 |
Viðauki IV | Skólpmengun frá skipum | 27. september 2003 | 146 |
Viðauki V | Sorpmengun frá skipum | 31. desember 1988 | 155 |
Viðauki VI | Loftmengun frá skipum | 19. maí 2005 | 101 |