Möltukross
Möltukross eða Amalfikross er kross sem Jóhannesarriddarar og síðar Mölturiddarar hafa notað sem sitt tákn. Uppruni táknsins (og riddarareglunnar) er í bænum Amalfi í Kampaníu sem á 11. öldinni var sjálfstætt lýðveldi. Krossinn er áttskiptur þar sem hver af fjórum örmum hans er klofinn í endann. Krossinn minnir því á fjögur „V“ tengd saman að neðan.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Möltukrossi.