Móasef
Móasef eða kvíslsef[1] (fræðiheiti: Juncus trifidus) er lágvaxið þurrlendis-sef sem vex í toppum.
Móasef | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Juncus trifidus L. |
Lýsing
breytaStráin eru fíngerð og blómin, 1 til 4 stykki, standa ofarlega, þar sem blöðin kvíslast. Blómhlífarblöð eru 6 og sömuleiðis fræflarnir. Þeir eru ljósgulir en frævan ljósgræn. Móasef er oftast 8 til 25 sentimetra hátt og blómbast í júní til júlí. Það er mjög algengt á Íslandi.
Samlífi
breytaÞrjár tegundir sveppa hafa verið skráðar vaxandi á móasefi. Þær eru Arthrinium bicorne sem vex innan í vefjum plantna og Bricookea sepalorum og Lachnum calycoides sem eru niðurbrotssveppir sem lifa á dauðu móasefi.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Gísli Kristjánsson og Ingólfur Davíðsson. Fóðurjurtir. Prentsmiðjan Edda.
- ↑ Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Móasef.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Juncus trifidus.