Lawrence Lessig
Lawrence Lessig (f. 3. júní 1961) er bandarískur lögfræðingur, heimspekingur og pólitískur aðgerðasinni. Hann er framkvæmdastjóri Siðfræðistofnunar Edmond J. Safra við Harvardháskóla og lagaprófessor sömuleiðis. Lessig er mikill baráttumaður um að létta á hömlum höfundalaga og hefur skrifað nokkrar bækur um það sem hann kallar „frjálsa menningu”. Hann situr í stjórn fjölda samtaka: Creative Commons, Software Freedom Law Center, ráðgefandi stjórnarmeðlimur við Sunlightstofnunina og fyrrverandi stjórnarmeðlimur Electronic Frontier Foundation. Hann hefur sagst vera hættur að vinna að málefnum tengdum höfundarétti og ætla að snúa sér í meiri mæli að spillingu í bandarísum stjórnmálum.
Tengt efni
breytaTenglar
breyta- Heimasíða Lessigs
- Change Congress, verkefni sem Lessig stofnaði til
- Fyrirlestur Lessigs um frjálsan höfundarétt frá árinu 2002
- The Future of Ideas, bók eftir Lessig með takmörkuðum Creative Commons höfundarétti
- Culture[óvirkur tengill], bók eftir Lessig með takmörkuðum Creative Commons höfundarétti
- Code: Version 2.0 Geymt 7 desember 2010 í Wayback Machine, bók eftir Lessig með takmörkuðum Creative Commons höfundarétti
- Remix: Making Art and Commerce Thrive in the Hybrid Economy, bók eftir Lessig með takmörkuðum Creative Commons höfundarétti