Kjói (fræðiheiti Stercorarius parasiticus) er sjófugl af kjóaætt (Stercorariidae) en skúmur tilheyrir einnig þeirri ætt. Hann er farfugl á Íslandi og kemur til landsins snemma í maí. Kjói er algengur um allt land upp að 700 metrum en velur helst sandauðnir nálægt sjó fyrir varp. Hann er um 45 sm langur og vænghaf hans er um 120 sm. Hann verpir allt að fjórum ólífugrænum eggjum.

Kjói

Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Fuglar (Aves)
Ættbálkur: Strandfuglar (Charadriiformes)
Ætt: Kjóaætt (Stercorariidae)
Ættkvísl: Stercorarius
Tegund:
S. parasiticus

Tvínefni
Stercorarius parasiticus
(Linnaeus, 1758)
Stercorarius parasiticus
Kjói eltir fugl til að ræna fæðu

Kjóinn lifir á ýmis konar smádýrum og hann tekur oft unga eða egg frá öðrum fuglum og stelur fæðu frá sjófuglum með því að elta þá þar til þeir sleppa fæðunni. Stofnstærð kjóa hér á landi er talin frá 5.000 til 10.000 pör.

Tvær aðrar tegundir kjóa; ískjói (Stercorarius pomarinus) og fjallkjói (Stercorarius longicaudus) koma stundum til Íslands. Ískjóar verpa ekki á Íslandi en örfáir fjallkjóar (innan við 50 fuglar) verpa á Norðurlandi.[1]

Heimildir

breyta
  • „Get ég fengið að vita allt um kjóa?“. Vísindavefurinn.
  • Fuglavefurinn Kjói Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine

Tenglar

breyta
  1. Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Fjallkjói (Stercorarius longicaudus), Vefur Náttúrufræðistofunar Íslands, síðast uppfærð október 2018 https://www.ni.is/node/27320 Geymt 22 apríl 2019 í Wayback Machine