„Árneshreppur“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Ekkert breytingarágrip
S.Örvarr.S.NET (spjall | framlög)
m stubbavinnsla AWB
Lína 16:
'''Árneshreppur''' er nyrsta [[sveitarfélag]]ið í [[Strandasýsla|Strandasýslu]] og afskaplega landmikið. Í suðri nær [[hreppur]]inn frá [[Speni (Ströndum)|Spena]] undir [[Skreflufjall]]i á milli [[eyðibýli|eyðibýlanna]] [[Kaldbakur|Kaldbaks]] og [[Kolbeinsvík]]ur og að norðanverðu að [[Geirólfsgnúpur|Geirólfsgnúp]] fyrir norðan [[Skjaldabjarnarvík]].
 
Árneshreppur er stundum nefndur [[Víkursveit]] eftir búsældarlegasta hluta [[sveitarfélag]]sins, [[Trékyllisvík]], og er það fornt nafn á hreppnum. Trékyllisvík var vettvangur hörmulegra atburða á tímum [[galdramál|galdraofsókna]] á [[17. öld]], en þar voru þrír [[galdramenn]] brenndir árið [[1654]] í klettagjá sem kallast [[Kistan|Kistan]].
 
Á svæðinu urðu til vísar að [[þéttbýli]] á [[20. öldin|20. öld]] í [[Kúvíkur|Kúvíkum]], [[Gjögur|Gjögri]] og [[Djúpavík]], einkum í tengslum við [[hákarlaveiðar]] og [[síldveiðar]], og eru þar miklar menjar um atvinnulíf og mannlíf.
Lína 22:
Ekkert [[aðalskipulag]] er í gildi, en samkvæmt lögum þarf að vera búið að vinna slíkt árið [[2008]]. [[Verslunarstaður]] er í [[Norðurfjörður|Norðurfirði]], rekinn af [[Kaupfélag Steingrímsfjarðar|Kaupfélagi Steingrímsfjarðar]] á [[Hólmavík]].
 
{{Stubbur|ísland|landafræði}}
{{Íslenskur landafræðistubbur}}
{{Sveitarfélög Íslands}}