„Melstaður“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Jóna Þórunn (spjall | framlög)
mEkkert breytingarágrip
Jóna Þórunn (spjall | framlög)
viðbætur
Lína 27:
|}}
 
'''Melstaður''' er kirkjustaður og prestsetur í [[Miðfjörður|Miðfirði]]. Sókn kirkjunar tilheyrir [[Melstaðarprestakall]]i. Fyrsta skrásetta aðsetur á Melstað er frá [[14. öld]]. [[Arngrímur Jónsson]] hinn lærði er að líkindum frægasti prestur sem hefur setið á Melstað. Núverandi kirkja var reystreist fyrir[[1947]].

==Saga==
Á rúmlegaMelstað fimmtíuhefur árum, en áður stóð þarverið kirkja úrfrá viðiþví semum var1050; reysteða [[8.þar júlí]],til [[1847]]kirkjan enfauk húnsnemma fauk íárs óveðri1942. Núverandikirkja presturvar ogtekin prófastur á Melstað er Guðnií Þórnotkun Ólafsson1947.
 
Í fornöld nefndist staðurinn Melur en eftir að kirkja var reist þar eftir kristnitökuna afbakaðist nafnið í Melstaður. Bærinn stendur á mel einum vestan við [[Miðfjarðará]] og sér þaðan vel yfir fremri hlut sveitarinnar sem og að [[Laugarbakki|Laugarbakka]]. Arngrímur Jónsson hinn lærði bjó að Melstað á 17. öld og var lengi vel prestur á staðnum. Skammt frá kirkjustaðnum er kuml; svokallaður Kormákshaugur. Þjóðsaga segir að ef grafið verði í hauginn komi kirkjan til með að standa í björtu báli.
 
Sr. Guðmundur Vigfússon hóf þjónustu sína á Mel 1859 og þótti honum þá gamla torfkirkjan (byggð 1810) orðin hrörleg og gömul. Gamla kirkjan var „ekki fokheld á vetrardag“ og stóð á lægsta stað í gamla kirkjugarðinum. Það var þá þannig að „flöturinn umhverfis kirkjugarðinn er meira en hálfri annarri alin hærri en grundvöllur kirkjurnnar“ og þar af leiðandi rann vatn að kirkjunni en ekki frá henni. Vildi hann láta færa kirkjuna á ávalan hól, Hjallhól, nokkuð hærri en bæjarstæðið sjálft. Þetta skrifar sr. Guðmundur í bréfi til prófasts; dagsett 14. október 1861. Samþykki fékkst meðal íbúa sveitarinnar að færa kirkjuna. Kirkjan var svo tekin í notkun 2. desember 1865 eftir 376 dagsverka vinnu.
 
Haustið 1941 dreymir Björn G. Bergmanns, sóknarnefndarformaður og bóndi á Svarðbæli í Miðfirði, nokkru norðan við Melstað, að hann heyri í fimm prestum sem ganga til kirkju á Melstað. Aðfaranótt fokdags, 15. janúar 1942, dreymir hann sama draum en þá eru einungis sumir prestanna hempuklæddir og aðrir ekki. Veit Björn þá um morguninn að draumurinn viti ekki á gott. Eftir gegningar hringir séra Jóhann Kr. Briem, sem þá þjónaði að Melstað, og segir að kirkjan hafi fokið þá um morguninn. Brotnaði hún í spón. Brak kirkjunnar var boðið upp 12. maí sama ár og voru tekjur af því rúmar 6 milljónir krónur. Þá fundu kúasmalar brak um allt Melstaðarland og í skurði einum fannst altarið lítið skemmt.
 
Núverandi kirkja þar var vígð 8. júní 1947 en hún er úr steinsteypu og rúma kirkjubekkirnir 150 manns í sæti. Við kirkjuna stendur safnaðarheimilið, alls um 100 ára gamalt hús. Altaristaflan er eftir Magnús Jónsson prófessor og skiptist hún í miðhluta, þar sem segir frá Jesú á fjallinu, og hliðarvængi, þar sem sagt er frá þeim Móses og Aron. Predikunarstóll kirkjunnar er eftir Ríkarð Jónsson myndlistarmann (myndskera).
 
== Heimildir ==
* [http://www.northwest.is/1kirkjur.asp]
* Gísli H. Kolbeins (ritstj.). 1999. ''Melstaðarkirkja - afmælisrit''. Sóknarnefnd Melstaðarsóknar, Melstað.
* Tómas Einarsson og Helgi Magnússon (ritstj.). 1989. ''Íslandshandbókin - náttúra, saga og sérkenni''. Örn og Örlygur, Reykjavík.
 
{{Íslenskur landafræðistubbur}}