„Sojúz 1“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Stofnaði grein
 
bætti við heimildum
Lína 1:
[[Mynd:Soviet Union-1964-stamp-Vladimir Mikhailovich Komarov.jpg|thumb|Frímerki sem var gefið út í Sovétríkjunum til heiðurs Komarovs]]
Soyuz 1 var [[Sovétríkin|sovésk]] eldflaug sem var hönnuð til að koma manni út í geiminn og til [[Tunglið|tunglsins]]. Fyrstu Soyuz eldflauginni var skotið á loft þann 23. apríl árið 1967. Sovétmenn höfðu það markmið að komast á tunglið en ekki fór allt eftir áætlun. Soyuz 1 var ennþá á tilraunarstigi þegar því var skotið á loft þar sem rússneski geimfarinn [[Vladimir komarov|Vladimir Komarov]] var um borð. Skráðir voru um 203 gallar í geimfarinu þegar það voru aðeins nokkrar vikur þangað til að það yrði sent út í geim, en listanum yfir gallana var ekki komið í réttar hendur. Vandamálin hófust um leið og geimfarið var komið á braut um [[Jörðin|jörðu]]. Ein [[sólarsella]] geimfarsins brást sem leiddi til þess að það slokknaði á rafmagninu og því virkaði stjórnstöð geimfarsins ekki. Einnig virkuðu fallhlífar geimfarsins ekki þegar það kom aftur inn í [[Lofthjúpur Jarðar|lofthjúp]] jarðar. Bandaríska leyniþjónustan var við hlustir á meðan geimfarið var að brotlenda og gátu þeir heyrt Komarov öskra og segja að hann væri að fara að deyja. Einnig bölvaði hann um einstaklingunum sem létu hann fara inn í þetta misheppnaða [[geimfar]]. Vladimir var fyrsti maður sögunnar sem lést í geimferð. Vladimir Komarov átti konu og tvö börn. Ekkert var talað um galla geimfarsins í fjölmiðlum í Sovétríkjunum en rannsókn hófst um orsakir brotlendingarinnar eftir dauða Komarov. Jarðarför hans var haldin þann 26. apríl árið 1967 í [[Moskva|Moskvu]].
 
== Heimildir ==
Amy Shira Teitel. (2020, 21. október). How Vladimir Komarov Died on Soyuz 1. Sótt þann 9. mars 2021 af How Vladimir Komarov Died on Soyuz 1 | by Amy Shira Teitel | The Vintage Space | Medium
 
Pruitt, S. (2018, 31. maí). The 5 Deadliest Disasters of the Space Race. Sótt 24. janúar 2021 af <nowiki>https://www.history.com/news/the-5-deadliest-disasters-of-the-space-race</nowiki>
 
Timofeychev, A. (2018, 29. janúar). The dark side of the Soviet space program: 3 tragic disasters. Sótt 24. janúar 2021 af <nowiki>https://www.rbth.com/science-and-tech/327410-dark-side-of-space-program</nowiki>