„Jakob 1. Skotakonungur“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Addbot (spjall | framlög)
m Bot: Flyt 32 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q235234
Xqbot (spjall | framlög)
m Vélmenni: en:James I of Scotland er gæðagrein; útlitsbreytingar
Lína 7:
Arabella drottning var þá látin og Róbert konungur óttaðist um líf yngri sonar síns. Árið 1406 hugðist hann senda drenginn til [[Frakkland]]s og láta hann alast þar upp. En enskir [[Sjóræningi|sjóræningjar]] hertóku skipið og fluttu Jakob til [[Hinrik 4. Englandskonungur|Hinriks 4.]] Englandskonungs. Nokkrum dögum síðar dó Róbert og Jakob varð konungur að nafninu til. Hertoginn af Albany var landstjóri í Skotlandi, réði þar öllu og talaði jafnan um Jakob sem „son konungsins heitins“ en ekki sem konung, enda hafði hann sjálfur augastað á krúnunni. Þegar hann lést tók [[Murdoch Stewart, hertogi af Albany|Murdoch]] sonur hans við hertogadæminu og landstjórninni.
 
Jakob naut góðrar meðferðar í fangavistinni í [[Lundúnaturn|Lundúnaturni]]i og [[Windsor-kastali|Windsor-kastala]] og fékk ágæta menntun. Eftir 1419 var hann meðhöndlaður fremur eins og gestur við hirðina en gísl og á árunum 1420-1422 barðist hann með [[Hinrik 5. Englandskonungur|Hinrik 5.]] og enska hernum í Frakklandi, meðal annars gegn Skotum, sem studdu Frakka. Þegar Hinrik dó í Frakklandi [[1422]] sneri Jakob aftur til Englands. [[Hinrik 6.]] var ekki orðinn árs gamall og forráðamenn hans höfðu lítinn áhuga á að halda Jakob lengur í Englandi en vildu koma honum í skoska hásætið. Einnig höfðu tekist ástir með honum og [[Jóhanna Beaufort, Skotadrottning|Jóhönnu Beaufort]], dóttur hertogans af Somerset og frænku Hinriks konungs, og þótti ættingjum hennar mikilsvert að þau gætu gifst og hún yrði drottning. Þótt hertoginn af Albany væri tregur að sleppa völdum átti Jakob öfluga bandamenn í Skotlandi, en þar á meðal var annar föðurbróðir hans, jarlinn af Atholl. Á endanum var samið um lausnargjald fyrir konunginn - en [[heimanmundur]] Jóhönnu gekk upp í það að hluta — og hann gat gifst og snúið heim.
 
== Heimkoma ==
Lína 15:
 
== Konungsmorð ==
Jakob átti áfram í erjum við ýmsa skoska aðalsmenn og aflaði sér óvina, auk þess sem vopnahléssamningur við Englendinga rann út 1436 og Jakob hóf umsátur um [[Roxburgh-kastali|Roxburgh-kastala]], sem Englendingar höfðu á sínu valdi. Hann varð þó að hörfa þaðan og þótti hafa fengið háðuglega útreið. Frændi hans, jarlinn af Atholl, hafði nú snúist gegn honum og sonarsonur hans, Robert Stewart, fór fyrir hópi manna sem réðist að konungi þar sem hann dvaldist í klaustri í útjaðri [[Perth |Perth]] og drap hann.
 
Drottningin særðist en komst undan og gat komið boðum til Edinborgar, þar sem ríkisarfinn, [[Jakob 2. Skotakonungur|Jakob 2.]], var og komið honum í öruggt skjól. [[Samsæri]] óvina konungs fór út um þúfur og jarlinn af Atholl, sonarsonur hans og fleiri voru handteknir og síðan teknir af lífi.
Lína 33:
}}
{{Töfluendir}}
{{fd|1394|1437}}
 
[[Flokkur:Saga Skotlands]]
[[Flokkur:Þjóðhöfðingjar Skotlands]]
 
{{fd|1394|1437}}
{{Tengill GG|en}}