„Mjöl“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Navaro (spjall | framlög)
Ekkert breytingarágrip
Navaro (spjall | framlög)
Ekkert breytingarágrip
Lína 5:
Í kringum 9000 f.Kr. byrjuðu menn að að mala [[hveiti]]fræ á milli [[kvarnarsteinn|kvarnarsteina]] til að búa til mjöl. [[Egyptaland hið forna|Egyptar]] uppgötvuðu [[ger]] um 3000 f.Kr. [[Rómaveldi|Rómverjar]] eru taldir hafa verið fyrstir til að nota [[mylla|myllur]] til að mala korn og fyrsta gufuknúna myllan hóf starfsemi í [[London]] árið [[1879]].
 
Á tímum [[iðnbyltingin|iðnbyltingarinnar]] varð geymsla á mjöli að vandamáli, þar sem æ færri rætuðu korn sitt sjálfir og möluðu eftir þörfum. Menn gerðu sér grein fyrir því að það var [[hveitikímkím]]ið í mjölinu sem stytti geymsluþolið, það fer smátt og smátt að þrána eftir að það hefur verið malað og kemst í snertingu við súrefni og geymsluþol heilhveitis var því aðeins sex til níu mánuðir. Því var farið að fjarlæga kímið og hýðið áður en hveitið var malað. Á þessum tíma gerðu menn sér ekki grein fyrir því að í kími og hýði væru nauðsynleg bætiefni og steinefni sem líkaminn þarfnaðist. Hveitimjöl sem er búið að fjarlægja hýði og kím úr kallast hvítt hveiti en það fær þó ekki skjannahvítan lit nema það hafi verið meðhöndlað með bleikingarefnum. Þessi aðferð breiddist fyrst út í stórborgum en smám saman varð hvítt hveiti alls staðar algengast og nú á dögum er mestallt það hveitimjöl sem framleitt er hvítt hveiti.
 
Á [[1931-1940|fjórða áratugnum]] var byrjað að bæta [[vítamín]]um og [[steinefni|steinefnum]] viðút í mjöl, þar á meðal [[járn]], [[níasín]], [[tíamín]] og [[ríbóflavín]]. Á [[1991–2000|tíunda áratug]] 20. aldar var byrjað að bæta [[fólínsýra|fólínsýru]] út í mjöl.
 
Í mjöli eruer margs konar [[mjölvi]], sem er tegund [[kolvetni|kolvetna]]tegund og kallast einnig [[fjölsykra]].
 
== Nokkrar mjöltegundir ==
* Baunamjöl er gert úr möluðum, þurrkuðum [[Baun|baunum]]. [[Kjúklingabaun|Kjúklingabaunamjöl]] er til dæmis mikið notað í indverskri matargerð og víðar og [[sojabaun]]amjöl er notað í sumar matvörur en þó einkum í dýrafóður.
* Bókhveitimjöl er gert úr [[bókhveiti]] og er meðal annars notað í [[Pönnukaka|pönnukökur]], til dæmis [[blini]], og [[núðlur]].
* Hrísmjöl er möluð [[hrísgrjón]]. Það er notað í brauð og grauta.
* [[Hveiti]]mjöl (oftast kallað hveiti) er þriðja algengasta korntegundin á eftir maís og hrísgrjónum en algengasta mjöltegundin. Til eru ýmis afbrigði, svo sem [[durum]]hveiti og [[spelt]].
* Kartöflumjöl er sterkja unnin úr [[kartafla|kartöflum]], notuð í bakstur og til að þykkja súpur, sósur og grauta.
* Kassavamjöl er sterkja úr [[kassava]]rót, kallast líka tapíóka.
* Kastaníumjöl er úr [[kastaníuhnetur|kastaníuhnetum]] og er notað víða í Suður-Evrópu í brauð og kökur.
* [[Maís|Maísmjöl]], bæði fínt og gróft, er malað úr maískorni og er mjög mikið notað í Suðurríkjum Bandaríkjanna, Mexíkó og annars staðar í Mið-Ameriku, svo og á Indlandi og víðar, í brauð, grauta og fleira. Maíssterkja (á Íslandi oft kölluð maizenamjöl) er aftur á móti möluð fræhvíta úr maískorni, oftast notuð til þykkingar.
* Möndlumjöl og hnetumjöl er gert úr fínmöluðum möndlum og hnetum og aðallega notað í kökur.
* [[Rúgur|Rúgmjöl]] er möluð rúgkorn og bæði til fínt og gróft. Það er notað í grauta og í brauð og er algengast í Austur- og Norður-Evrópu.
 
{{commons|Flour|Mjöli}}