Jharkhand
Jharkhand er fylki á Indlandi. Það var búið til úr suðurhéruðum Bíhar árið 2000 og á landamæri að Bíhar í norðri, Uttar Pradesh og Chhattisgarh í vestri, Odisha í suðri og Vestur-Bengal í vestri. Höfuðstaður fylkisins er borgin Ranchi en stærsta borg þess er Jamshedpur.
Íbúar Jharkhand eru tæpar 33 milljónir. Tæp 70% aðhyllast hindúatrú, 14% íslam, 13% sarnatrú og 4% kristni. Opinber tungumál fylkisins eru hindí, santalí, bengalska og úrdú.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Jharkhand.