Hringekja
Hringekja er útbúnaður sem snýst í hring með sætum fyrir farþega. Sæti farþega eru oft útbúin sem tréhestar eða önnur dýr og stundum hreyfast þau upp og niður í takt við tónlist til að líkja eftir hesti á brokki eða öðrum hreyfingum. Hringekjur eru algengar sem tæki í skemmtigörðum. Ýmiss konar hringekjur eru einnig algeng leiktæki á leiksvæðum barna.
Hringekja í Reykjavík
breytaFrá um 1920 til 1926 var hringekja á Íþróttavellinum á Melunum í Reykjavík. Gísli Halldórsson lýsir henni svo í endurminningum sínum:
- „Þetta var handsnúin hringekja. Uppi á lofti var þverslá sem gekk í gegnum ás sem náði frá gólfi og upp í þak. Á ásinn voru festir tréhestar sem gestirnir sátu á. Undir rjáfrinu sáu sjálfboðaliðar um að snúa hringekjunni með því að ýta á þverslána og urðu þeir að hlaupa allt hvað þeir gátu til þess að fá nokkra ferð á hestana. Þetta voru ungir strákar sem púluðu á loftinu eins og galeiðuþrælar í 20–30 mínútur. Eftir það fengu þeir sína umbun sem var ókeypis salíbuna á hestunum í 2–3 mínútur. Oft var ég í hópi strákanna sem sneri hringekjunni og dró ekki af mér. Það var ævintýri líkast að snúast á fleygiferð hring eftir hring á tréfákunum og þarna var stöðug biðröð á stærri mótum. En það kostaði peninga sem við strákarnir áttum ekki til. Eina ráðið var að vinna fyrir frírri ferð og það var alltaf nægur vinnukraftur til að snúa hringekjunni.“[1]
Tilvísanir
breytaHeimildir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hringekja.