Hræsvelgur
Hræsvelgur er jötunn í norrænni goðafræði, hann er í arnarham og situr við enda veraldar og frá honum koma vindar.
Eins og stendur í Vafþrúðnismálum:[1]
Hræsvelgr heitir, er sitr á himins enda, iötunn í arnar ham; af hans vængiom kvæða vind koma alla menn yfir.
Í Gylfaginningu er sagt að hann sé "á norðanverðum himins enda".[2]
Nafnið Hræsvelgur þýðir sá sem gleypir hræ.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Vafþrúðnismál, 37“. www.snerpa.is. Sótt 9. desember 2023.
- ↑ „Gylfaginning, kafli 18“. www.snerpa.is. Sótt 9. desember 2023.
- ↑ Simek, Rudolf (2006). Lexikon der germanischen Mythologie. Kröners Taschenausgabe (3., völlig überarbeitete Aufl. útgáfa). Stuttgart: Alfred Kröner. ISBN 978-3-520-36803-4.