Hornsteinn

áberandi steinn utan á byggingu til upplýsinga eða viðmiðunar

Hornsteinn er steinn sem komið er fyrir á áberandi stað utan á byggingu með áletrun sem tilgreinir ýmsar upplýsingar varðandi bygginguna, eins og byggingarár, hönnuð, byggingaraðila o.s.frv. Hornsteinn byggingar er yfirleitt lagður við hátíðlega athöfn sem markar formlegt upphaf byggingartímans, þótt það gerist yfirleitt eftir að grunnurinn hefur verið lagður.

Hornsteinn með bronslágmyndum.

Hugmyndin er komin til af því að áður fyrr var fyrsti hornsteinninn sá punktur sem hin horn byggingarinnar voru miðuð við.

Tengt efni

breyta

Tenglar

breyta
  • „Hvað er vitað um þá hefð að leggja hornsteina að byggingum?“. Vísindavefurinn.
   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.