Húsafriðun
Húsafriðun (eða húsavernd) er stefna sem tekin er í skipulagsmálum, og snýr að því að friða og vernda gömul hús gegn skemmdum eða niðurrifi, eða þegar þau hafa farið illa svo sem í bruna. Oft er um sögufræg hús að ræða, hús sem halda borgarmyndinni saman eða búa yfir vissum byggingarstíl sem þarf að halda til haga. Dæmi um húsfriðun var þegar rífa átti Bernhöftstorfuna í miðbæ Reykjavíkur á áttunda áratugnum en þá voru Torfusamtökin stofnuð. Þau börðust kröftuglega gegn niðurrifi húsanna á Bernhöftslóðinni og komu loks í veg fyrir byggingu nýtísku húsa.
Húsafriðun á Íslandi
breytaSamkvæmt lögum má friða mannvirki, hús eða húshluta sem hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Friðun getur náð til nánasta umhverfis hins friðaða mannvirkis. Friða má samstæður húsa sem hafa slíkt gildi sem að framan greinir og gilda þá reglur friðunar um hvert einstakt þeirra. Tilgangur friðunarinnar er að tryggja sem best varðveislu þess mannvirkis sem um ræðir.
Tengt efni
breytaTenglar
breyta- Heimasíða Húsafriðunarnefndar ríkisins Geymt 12 apríl 2007 í Wayback Machine
- Húsvernd á Íslandi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1992
- Gömlu húsin í Reykjavík; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1951
- Hversu langt á að ganga?; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1984
- Vaxandi rómantísk viðhorf hjá ungu fólki um þessar mundir; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1982
- Reykjavík er ekki svona; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1986
- Grein Halldórs Laxness um friðun Bernhöftstorfunnar; Brauð Reykjavíkur; birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1971 Geymt 30 september 2007 í Wayback Machine.
- John Betjeman og húsfriðun; grein úr Lesbók Morgunblaðsins 1967
- Húsfriðun - Verkefni um land allt; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1994
- Aftur til upprunans; grein í Morgunblaðinu 1999
- Leggið fram allan ykkar hraða, hug, kunnáttu og vandvirkni; grein í Morgunblaðinu 1978
- Húsvernd; grein í Morgunblaðinu 1975[óvirkur tengill]
- Myndlistasyrpa 1 - húsfriðun og minjavernd; grein í Morgunblaðinu 1977[óvirkur tengill]
- Ætlar að rífa yfir 100 gömul hús; grein í Þjóðviljanum 1986