Gleðihopp
Gleðihopp er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1981. Á henni flytur Jón Hrólfsson tólf harmonikulög. Platan er hljóðrituð í stereo. Upptaka: Stúdíó Bimbó. Pressun: Alfa. Ljósmynd: Norðurmynd. Prentun: Valprent hf.
Gleðihopp | |
---|---|
T 22 | |
Flytjandi | Jón Hrólfsson |
Gefin út | 1981 |
Stefna | Harmonikutónlist |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Lagalisti
breyta- Gleðihopp, marsúrki - Lag: Ragnar Sundquist
- Á torginu, skottís - Lag - Texti: Snæbjörn Einarsson
- Tangavalsinn - Lag - Texti: Björn Dal
- Hinrik hamingjusami, polki - Lag - Texti: Ole Johnny
- Létt spor, vals - Lag - Texti: Ragnar Sundquist
- Miðsumarræll - Lag: Kore Korneliusen
- Sjómannaskottís - Lag - Texti: Jonas Björnerud
- Sól á firðinum, vals - Lag: Toralf Tollefsen
- Á hvalveiðum, vínarkrus - Lag - Texti: Pálmi Stefánsson
- Kaupmannahafnarpolki - Lag - Texti: Walter Erikson - T Demei
- Pollý, marsúrki - Lag: Per Edberg
- Við skulum dansa, ræll - Lag - Texti: Peter Gulmoen
Textabrot úr opnu plötuumslags
breytaJÓN HRÓLFSSON er fæddur 27. marz 1946 í Sveinungsvík í Þistilfirði, og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Sjö ára gamall fór hann að fikta vð hnappaharmoniku bróður síns, og tókst honum fljótlega að ná á hana lagi. Eftir að Jón var fermdur fór hann að spila á dansleikjum á Raufarhöfn og nágreni. Um tvítugt lærði hann að lesa nótur hjá harmonikuleikaranum Jóhanni Jósepssyni í Ormalóni. Undanfarin ár hefir Jón leikið á dansleikjum á norðausturlandi, meðal annars hefir hann verið í nokkrum hljómsveitum, sem starfað hafa á Raufarhöfn. En þetta er í fyrsta sinn, sem Jón kemur í upptökustúdíó. Með Jóni leika á þessari plötu Birgir Karlsson á gítar, Finnur Finnsson á bassa og Steingrímur Stefánsson, sem leikur á trommur.
Upptaka fór fram í Stúdió Bimbó í marz 1981. Upptökumaður: Pálmi Guðmundsson. |
||
— NN
|